Lið vikunnar í enska - Enzo og Enzo frá City

Markvörður: Gianluigi Donnarumma (Manchester City) - Einn besti markvörður heims og maður stóru leikjanna.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Daniel Munoz (Nottingham Forest) - Kraftmikill og öflugur í sigri gegn Aston Villa. Af hverju reyndu Liverpool og Manchester United ekki að kaupa hann? Sterkt hjá Forest að krækja í hann.

Mynd: Nottingham Forest

Varnarmaður: Ezri Konsa (Arsenal) - Frábær í sigrinum gegn Sunderland. Átti aldrei að fá dæmda á sig vítaspyrnu.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Lewis Dunk (Brighton) - Markið hans eitt og sér í 5-0 sigrinum gegn Coventry kemur honum í liðið.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Tarik Muharemovic (Leeds United) - Alvöru skrokkur sem Leeds fékk í Bosníumanninum, skallar, tæklar og hleypur í gegnum andstæðinga. Leeds vann öflugan 4-1 sigur gegn Newcastle.

Mynd: Leeds

Varnarmaður: Leif Davis (Ipswich Town) - Vanmetinn leikmaður. Mark og stosending í sigri gegn Crystal Palace.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Enzo Fernandez (Manchester City) - Gjörsamlega geggjaður í sigrinum gegn United og gerði allt sem City þurfti á að halda.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Pascal Gross (Brighton) - Mark og stoðsendingatvenna. Feikilega mikilvægur fyrir Brighton.

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Kevin Schade (Brentford) - Hraði, kraftur, vinnusemi og mörk. Skoraði tvennu gegn Bournemouth.

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Mohamed Belloumi (Hull City) - Skoraði bæði mörk Hull í 2-2 jafntefli gegn Chelsea. Var flottur í Championship en hefur stigið enn frekar upp í deild þeirra bestu.

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Dominic Calvert-Lewin (Leeds United) - Skoraði og lagði upp í 4-1 sigri Leeds gegn Newcastle.

Mynd: EPA

Stjórinn: Enzo Maresca (Manchester City) - Taktískt gríðarlega öflugur og tók réttar ákvarðanir þegar tíu leikmenn Manchester City unnu erkifjendur sína.

Mynd: EPA

Svona er lið vikunnar.

Mynd: BBC
