Fotbolti.net
02.05.06 - 15:20
Magnús Már Einarsson

Ahandour til Grindvíkinga (Staðfest)

Ahandour til Grindvíkinga (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson

Franski sóknarmaðurinn Mounir Ahandour mun leika aftur með Grindvíkingum í Landsbankadeildinni í sumar líkt og hann gerði á síðasta tímabili og er hann væntanlegur hingað til lands á morgun en þetta staðfesti Sigurður Jónsson þjálfari liðsins við Fótbolti.net nú í dag.
Ahandour sem skoraði tvö mörk í sautján leikjum í Landsbankadeildinni á síðustu leiktíð var með Grindvíkingum í æfingaferð í Tyrklandi í síðasta mánuði.

Þar þótti hann standa sig vel og náði hann meðal annars að skora tvívegis í æfingaleik gegn tyrknesku liði og þá náði hann að fiska vítaspyrnu í leik gegn Val sem einnig fór fram ytra.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.