Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 02. maí 2021 14:30
Victor Pálsson
Sjáðu frábær tilþrif Zlatan í gær
Mynd: Getty Images
Zlatan Ibrahimovic, leikmaður AC Milan, sýndi frábær tilþrif í gær er hans menn mættu Benevento í Serie A.

Zlatan er mættur aftur í lið Milan eftir meiðsli og spilaði allan leikinn í gær í 2-0 heimasigri.

Svíinn komst ekki á blað í sigrinum en þeir Hakan Calhanoglu og Theo Hernandez gerðu mörkin.

Framherjinn var þó nálægt því að bjóða upp á stoðsendingu tímabilsins á Samu Castilliejo.

Zlatan átti magnaða hælsendingu inn fyrir á Castillejo sem mistókst þó að koma knettinum í netið eins og má sjá hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner