Chelsea og Arsenal vilja Kroupi - Man Utd bjartsýnt á að landa Ederson og Tonali - Inter hefur áhuga á Kepa
Gunnar Heiðar: Við urðum bara pinkulitlir í okkur
Aðstoðarþjálfari ÍR: Fannst við betra liðið allan tímann
Sterkastur í 8. umferð - Refsuðum þeim út um allan völl
Venni: Þetta var hræðileg árás á Aron Snæ
Maggi: Vonandi fáum við fljótlega stúku með þaki
Freyr Sig: Það er ljúft að vera í Fram í dag
Sölvi Geir mjög ánægður: Hefðum auðveldlega getað unnið stærra
Rúnar Kristins: Erfitt fyrir mig að vera með hann á bekknum
Ármann Ingi bjóst við láni en hefur sýnt að hann geti spilað í Bestu
Jökull hefur áhyggjur af stöðunni: Það væri skrýtið að gera það ekki
„Erfitt að fá á sig þrjú mörk og vinna en við gerðum það samt“
Jói Kalli: Rauða spjaldið gjörbreytir leiknum
Hólmar Örn: Hefur verið mikið vopn hjá okkur
Óskar segir liðið vera með svarta beltið í að tapa - „Eigum við að hýða okkur með belti?“
Oliver súr: Fyrsti leikurinn þar sem mér líður mjög vel
Siggi Höskulds ósáttur: Skilar sér núll inn á völlinn
Haraldur Freyr: Mögulega okkar versta frammistaða í sumar
„Líður miklu betur með svona tapleiki heldur en þegar menn leggja sig ekki fram"
Ásgeir Orri: Ég var ansi hræddur
Hemmi Hreiðars: Sætast í heimi
   lau 02. maí 2026 22:26
Alexander Tonini
Hemmi ósáttur: Brandari hvað Finnur og Ástbjörn komast upp með í 90 mínútur
Hermann Hreiðarsson var ósáttur út í dómgæsluna hér í kvöld
Hermann Hreiðarsson var ósáttur út í dómgæsluna hér í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stórleikur umferðarinnar fór fram á Hlíðarenda í kvöld þegar Valur fékk KR í heimsókn. KR kom sá og sigraði að lokum 4-1.

Hermann Hreiðarsson þjálfari Vals stillti upp varnarsinnuðu liði gegn KR á Hlíðarenda í kvöld. Hugmyndin var að liggja þétt til baka og sækja hratt á þá.

„Það fer eftir því hvernig það er reiknað. Eins og við byrjuðum leikinn þá fáum við tvö dauðafæri og áttum að fá vítaspyrnu. Þetta var púra vítaspyrna, það er góð byrjun að geta verið komið 2-0 yfir, þá er þetta allt annar leikur."

Lestu um leikinn: Valur 1 -  4 KR

Leikskipulag Valsmanna virtist ætla að ganga í byrjun leiks þegar Valsmenn fengu nokkur góð færi úr skyndisóknum en nýttu þau ekki. Fannst Hemma þessi taktík að liggja til baka og sækja hratt virka?

„Já þú verður að nýta færin og dómarar verða að dæma vítin, svo er það það. Maður er hundfúll með ákveðin atriði. En að sama skapi verður maður að vera hreinskilinn og segja að KR voru flottir."

Að leikslokum var Hemmi með nokkur vel valin orð handa dómurum leiksins, var hann að rifja upp vítaspyrnudóminn þegar Lúkas Logi var tekinn niður í teig en ekkert dæmt?

„Já já það var kannski sítt lítið af hverju. KRingar komast rosalega upp með það og þá sérstaklega Finnur Tómas þegar hann brýtur á Degi er með hann í fanginu og hrindir honum sem og Ástbjörn. Þeir komast upp með þetta í 90 mínútur. Það þarf að fara að taka á þessu, mér finnst það brandari."

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Slapp
banner
banner