02.06.06 - 10:44
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Kallstrom til Lyon (Staðfest)

Kallstrom á leiðinni til Lyon

Mynd: Guðmundur Svansson

Kallstrom á leiðinni til Lyon

Mynd: Guðmundur Svansson
Sænski landsliðsmaðurinn Kim Kallstrom gekk í dag til liðs við frönsku meistarana í Lyon eins og búist var við frá franska liðinu Rennes og skrifaði hann undir fjögurra ára samning við félagið.
Klúbbarnir komust loks að niðurstöðu eftir langar samningarviðræður og þurfa Lyon að borga sjö milljónir punda fyrir hinn 23. ára gamla Kallstrom. Kallstrom er miðjumaður og muna kannski margir eftir því að hann skoraði gegn Íslendingum í nóvember á síðasta ári.
Auk Kallstrom hefur Lyon einnig fengið miðjumanninn Jeremy Toulalan frá Nantes í sumar. Það bendir því allt til þess að Mahamadou Diarra er á leiðinni frá félaginu en hann hefur verið mikið orðaður við Manchester United og Real Madrid uppá síðkastið.