02.06.06 - 20:47
Hafliði Breiðfjörð
John Obi Mikel til Chelsea (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Chelsea hafa komist að samkomulagi um kaup á Nígeríumanninum John Obi Mikel. Þeir munu samtals greiða 16 milljónir punda fyrir leikmanninn en Manchester United fá 12 milljónir og 4 milljónir fara til norska félagsins Lyn.
Með þessu er búið að leysa deilumál sem hafa verið milli félaganna þriggja undanfarna mánuði. United hafa nú samþykkt að ljúka málinu að sinni hálfu og því fer Mikel til Chelsea.
,,Samkvæmt samkomulaginu mun Chelsea greiða Manchester United 12 milljónir punda, helminginn strax og helminginn eftir 12 mánuði, og Lyn 4 milljónir pnda, helminginn núna, og helminginn eftir 12 mánuði," sagði í yfirlýsingu Manchester United í kvöld.