Fotbolti.net
02.06.08 - 13:05
Eyþór Ernir Oddsson
Ítalska deildin

Jose Mourinho tekur við Inter (Staðfest)

Jose Mourinho tekur við Inter (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Jose Mourinho hefur verið ráðinn þjálfari Inter en þetta staðfesti félagið nú í hádeginu. Mourinho tekur við starfinu af Roberto Mancini sem var rekinn á dögunum.
Mourinho, sem er 45 ára gamall, stýrði Chelsea til sigurs í ensku úrvalsdeildinni tvisvar og vann Meistaradeildina þegar hann var við stjórn hjá Porto.

Mourinho skrifar undir þriggja ára samning við Inter en hann hefur verið atvinnulaus frá því í september 2007 þegar hann yfirgaf skyndilega herbúðir Chelsea.

,,Portúgalski þjálfarinn hefur gert þriggja ára samning og mun vinna við hlið Rui Farias, Silvino og Andrei Villas Boas. Aðstoðarþjálfari verður Giuseppe Baresi," sagði í tilkynningu á heimasíðu Inter.

Í fyrramálið verður Mourinho opinberlega kynntur sem næsti þjálfari Inter og hann mun þá svara spurningum fjölmiðla.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.