Fotbolti.net
02.06.25 - 19:11
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Chelsea fær miðjumann frá Sporting (Staðfest) - Skrifaði undir átta ára samning

Chelsea fær miðjumann frá Sporting (Staðfest) - Skrifaði undir átta ára samning
Canon

Mynd: EPA

Miðjumaðurinn Dario Essugo er genginn til liðs við Chelsea frá Sporting. Hann skrifar undir átta ára samning við félagið. Chelsea borgar 18,5 milljónir punda fyrir hann.

Essugo er tvítugur Portúgali en hann var á láni hjá Las Palmas á síðustu leiktíð þar sem hann lék 27 leiki og skoraði eitt mark í spænsku deildinni.
Hann er uppalinn hjá Sporting og varð yngsti leikmaðurinn í sögu félagsins til að spila þegar hann kom við sögu gegn Vitoria de Guimaraes árið 2021, þá aðeins 16 ára gamall.

Hann varð síðan yngsti leikmaðurinn til að byrja leik fyrir Sporting tæpu ári síðar en hann bætti þar meet Luis Figo.

Hann á átta landsleiki að baki fyrir U21 landslið Portúgals.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.