Höjlund gæti verið lánaður til Inter - Tveir sóknarmenn orðaðir við Man Utd - Wirtz með samkomulag við Liverpool - City færist nær Reijnders
   mán 02. júní 2025 09:12
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Jón Þór: Virðist sem leikmenn hafi ekki náð að höndla að hafa unnið Blika
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA fékk skell á heimavelli í gærkvöldi þegar ÍBV kom í heimsókn. Lokatölur urðu 0-3, Eyjamönnum í vil.

ÍA hefur unnið þrjá leiki í deildinni og tapað sjö. ÍA hafði unnið frábæran 1-4 sigur á Breiðabliki á fimmtudag en náði alls ekki að fylga þeim úrslitum eftir.

Lestu um leikinn: ÍA 0 -  3 ÍBV

„Við vor­um í raun áhorf­end­ur í þess­um leik. Þetta var hörmu­leg frammistaða og ég óska ÍBV til ham­ingju með verðskuldaðan og alltof auðveld­an sig­ur," sagði þjálfarinn Jón Þór Hauksson við mbl.is eftir leikinn.

Hann ræddi svo líka við Vísi eftir leikinn.

„Eyjamenn voru ofan á alls staðar og áttu þennan sigur fyllilega skilinn. Það er mikið áhyggjuefni hvað við vorum andlausir í þessum leik. Það er sama sagan hjá okkur, það er annað hvort on eða off hjá okkur. Svo virðist sem leikmenn liðsins hafi ekki náð að höndla það að vinna Blika í síðustu umferð. Þeir mættu af hálfum hug inn í þetta verkefni."

Sagði Jón Þór eftir leikinn og talaði um að það yrði ekkert hlé hjá Skagamönnum næstu daga, það verði að sjá til þess að liðið mæti almennilega til leiks eftir landsleikina.

ÍA er í botnsæti deildarinnar eftir tíu umferðr.
Láki: Þetta mun rúlla bara þessa fríviku
Besta-deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 10 6 2 2 19 - 11 +8 20
2.    Breiðablik 10 6 1 3 17 - 16 +1 19
3.    Valur 10 5 3 2 22 - 13 +9 18
4.    Vestri 10 5 1 4 12 - 7 +5 16
5.    Stjarnan 10 4 2 4 17 - 18 -1 14
6.    ÍBV 10 4 2 4 12 - 15 -3 14
7.    KR 10 3 4 3 28 - 23 +5 13
8.    Fram 10 4 0 6 16 - 17 -1 12
9.    KA 10 3 3 4 10 - 17 -7 12
10.    FH 10 3 2 5 15 - 14 +1 11
11.    Afturelding 10 3 2 5 8 - 13 -5 11
12.    ÍA 10 3 0 7 12 - 24 -12 9
Athugasemdir
banner