Fotbolti.net
02.07.07 - 10:37
Magnús Már Einarsson

Arsenal kaupir Eduardo da Silva (Staðfest)

Arsenal kaupir Eduardo da Silva (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Arsenal hefur náð samkomulagi um að kaupa Eduardo da Silva frá Dinamo Zagreb fyrir óuppgefna upphæð. Leikmaðurinn hefur gert fjögurra ára samning við Arsenal og á einungis eftir að standast læknisskoðun hjá félaginu.
Da Silva kom til Króatíu þegar hann var fimmtán ára og fékk ríkisborgararétt 22 ára. Hann hefur skorað sjö mörk fyrir króatíska landsliðið á ferli sínum.

Hann spilaði með Dinamo Zagreb á Emirates vellinum þegar að liðið féll samanlagt 5-1 úr keppni í þriðju umferð Meistaradeildarinnar í fyrra og hann þekkir því til á heimavelli Arsenal.

Da Silva var markahæstur í Króatíu á síðustu leiktíð með 34 mörk sem er met en hann hefur leikið áður á Íslandi, það gerði hann með U-21 árs landsliði Króata árið 2005. Þá skoraði hann fyrra mark liðsins á KR-velli í 2-1 sigri á íslenska U-21 landsliðsins.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.