Fotbolti.net
02.07.07 - 19:22
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Maceo Rigters til Blackburn (Staðfest)

Rigters skorar hér í úrslitaleiknum gegn Serbum á Evrópumóti U-21 árs liða í sumar

Rigters skorar hér í úrslitaleiknum gegn Serbum á Evrópumóti U-21 árs liða í sumar

Canon

Mynd: Getty Images

Blackburn Rovers hefur unnið kapphlaupið um sóknarmanninn Maceo Rigters hjá hollenska félaginu NAC Breda.
Þessi 23 ára gamli leikmaður var ein af stjörnum U-21 árs liði Hollendinga sem vann Evrópumótið í júní þar sem hann skoraði fjögur mörk.

Rigters skrifaði undir fjögurra ára samning við Blackburn en hann hafði einnig verið orðaður við Celtic, Rangers, Newcastle og Norwich City.

Rigters kom úr hinni fornfrægu Ajax-akademíu en hann hefur einnig spilað fyrir Heerenveen og FC Dordrech áður en hann fór til NAC Breda árið 2004.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.