Fotbolti.net
02.07.18 - 22:21
Egill Sigfússon

Þórarinn Ingi: Þrjú stig alltaf sæt, skiptir ekki máli hvar við fáum þau

Auglýsing
Tóti sótti þrjú stig á gamla heimavöllinn í kvöld

Tóti sótti þrjú stig á gamla heimavöllinn í kvöld

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir

Stjörnumenn mættu í Krikann í kvöld og unnu mjög sterkan 2-3 sigur í stórkostlegum fótboltaleik. Þórarinn Ingi var að spila á móti sínum gömlu félögum og var hæst ánægður með spilamennsku liðins og sagði þessi þrjú stig sæt.
„Við erum búnir að vera á góðu runni og það hefur gengið vel hjá okkur. Þrjú stig eru alltaf sæt og það skiptir ekki máli hvar þau eru hvort sem þau eru hér eða annars staðar.\"

Þórarinn segir liðið vera með fullt sjálfstraust sem sýndi sig með því að koma tvisvar tilbaka og vinna í Krikanum í kvöld.

„Það er bullandi sjálfstraust í liðinu og það er mikill karakter að koma tilbaka, sérstaklega hér í Krikanum og það sýnir bara hversu góðir við erum.\"

Robbie Crawford fór niður í teignum eftir baráttu við Þórarinn og vildi fá vítaspyrnu en fékk gult spjald fyrir dýfu, Tóti segist halda að hann hafi náð að draga fótinn tilbaka í tæka tíð en þyrfti að sjá þetta aftur.

„Ég þarf bara að sjá þetta betur, mér fannst ég draga löppina tilbaka en ég veit ekki hvort þetta var snerting, ég þarf að sjá þetta aftur og þá get ég dæmt um hvort þetta var víti eða ekki.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.