Bayern München gæti gert óvænt tilboð í Rashford - Liverpool hafnaði fyrirspurn Bayern um Díaz og ætlar ekki að selja hann
   mið 02. júlí 2025 14:09
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Jakob Gunnar fer til Lyngby - Hrafn í Þrótt
Jakob Gunnar.
Jakob Gunnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hrafn fer í Þrótt.
Hrafn fer í Þrótt.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Jakob Gunnar Sigurðsson er á leið til Lyngby í Danmörku, framherjinn verður hjá Þrótti, þar sem hann er á láni frá KR, þar til félagaskiptaglugginn opnar 17. júlí.

Hann verður þá kallaður til baka í KR og verður svo lánaður til danska félagsins sem getur í kjölfarið keypt Húsvíkinginn. Orri Rafn Sigurðarson segir að Jakob muni spila með U19 liði Lyngby.

Þróttur mun svo, samkvæmt heimildum Fótbolta.net, fá Hrafn Tómasson á láni frá KR. Miðjumaðurinn er að snúa til baka eftir að hafa slitið krossband í leik með KR í apríl í fyrra.

Jakob Gunnar var keyptur til KR frá Völsungi síðasta sumar, kláraði tímabilið með Völsungi, hjálpaði liðinu upp í Lengjudeildina og varð markakóngur í 2. deild. Hann var svo í vetur lánaður til Þróttar og hefur skorað sex mörk í þrettán leikjum í deild og bikar.

Lyngby hefur lengi verið með Jakob Gunnar á blaði því hann fór til félagsins á reynslu sumarið 2023. Unglingalandsliðsmaðurinn varð átján ára í síðasta mánuði.

Annar Jakob, Jakob Franz Pálsson, leikmaður Vals, hefur verið orðaður við endurkomu í KR en Björn Steinar Jónsson, formaður fótboltadeildar Vals, hafði, þegar Fótbolti.net ræddi við hann, ekkert heyrt af mögulegum skiptum og sagði hann það ekki í plönunum að Jakob færi frá félaginu. Jakob Franz, sem er fjölhæfur varnarmaður, lék með KR á láni frá Venezia tímabilið 2023.

Athugasemdir
banner
banner
banner