Fotbolti.net
02.08.05 - 13:04
Hafliði Breiðfjörð

Alan Stubbs til Sunderland (Staðfest)

Alan Stubbs til Sunderland (Staðfest)
Canon
Alan Stubbs fyrrum varnarmaður Everton er genginn í raðir Sunderland en hann gerði eins árs samning við félagið með möguleika á framlenginu til árs í viðbót. Stubbs hafði fyrr verið leystur undan samningi hjá Everton.
Stubbs er 33 ára gamall og hefur einnig leikið með Bolton og Celtic. Hann var í liði Everton sem vann sér sæti í Meistaradeild Evrópu á síðustu leiktíð en verður nú sjöundi leikmaðurinn sem Mick McCarthy fær til Sunderland í sumar.

Stubbs er 33 ára gamall og hefur einnig leikið með Bolton og Celtic. Hann var í liði Everton sem vann sér sæti í Meistaradeild Evrópu á síðustu leiktíð en verður nú sjöundi leikmaðurinn sem Mick McCarthy fær til Sunderland í sumar.

,,Hann hefur leiðtogahæfileika. Leikmaður að hans gæðum verður frábær viðbót við okkur," sagði McCarthy við vefsíðu félagsins.

,,Þú þarft menn eins og hann hérna, ég er hæstánægður með að hafa fengið hann."

Stubbs lék næstum 40 leiki með Everton á síðustu leiktíð og fór aðeins frá félaginu því það var ekki tilbúið að bjóða honum tveggja ára samning sem hann vildi. Hann sagðist spenntur yfir nýja félaginu.

,,Ég er mjög ánægður með að hafa samið við Sunderland og ég hlakka til leiktíðarinnar og áskoruninni framundan. Ég veit að Sunderland er með góða leikmenn en þeir eru með ungan hóp svo vonandi hjálpar reynslan mín," sagði Stubbs.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.