Fotbolti.net
02.08.05 - 21:30
Hafliði Breiðfjörð

Liverpool lána Tallec og Medjani (Staðfest)

Liverpool lána Tallec og Medjani (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

Sunderland gengu endanlega frá lánssamningi á Anthony Le Tallec framherja Liverpool í dag en samningurinn gildir út komandi leiktíð. Tallec sem er tvítugur Frakki hefur ekki náð að festa sig í sessi á Anfield síðan hann kom árið 2002.
,,Hjá Liverpool er mjög erfitt að spila í hverri viku, þjálfarinn Rafael Benítez sagði mér það," sagði Tallec við vefsíðu Sunderland.

Liverpool hafa einnig lánað varnarmanninn Carl Medjani til franska 1. deildarfélagsinsn Metz út næstu leiktíð en hann var keyptur frá Saint Etienne árið 2003. Medjani er fyrirliði franska U-21 árs landsliðsins og var á láni hjá Lorient í Frakklandi á síðustu leiktíð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.