02.08.07 - 13:28
Sindri Þór Þorgeirsson
Elano til Macnhester City (Staðfest)

Sven Göran var greinilega ekki sáttur við hópinn sem hann tók við hjá City

Mynd: Getty Images

Sven Göran var greinilega ekki sáttur við hópinn sem hann tók við hjá City

Mynd: Getty Images
Manchester City hafa nú gengið frá kaupunum á brasilíska landsliðsmanninum Elano frá úkraínska liðinu Shaktar Donetsk en kaupverðið á honum er 8 milljónir punda.
Elano, sem er sóknarsinnaður miðjumaður, hefur spilað í Úkraínu í 2 ár og hefur á þeim tíma leikið 49 leiki og skorað 19 mörk hann skrifar undir 4 ára samning verður þriðji leikmaðurinn sem Eriksson fær til City á síðustu 3 klukkustundum en fyrr í dag fengu City til sín spænska varnarmanninn Javi Garrado og Króatann efnilega Vedran Corluka.
Sven Göran Eriksson er því búinn að fá sjö leikmenn til sín í sumar því auk þessarra þriggja hafði hann áður fengið til sín Martin Petrov, Rolando Bianchi, Geovanni og svissneska miðjumannin Gelson Fernandes og enn er búist við fleiri kaupum á næstunni.

Heimild: Sky Sports