Fotbolti.net
02.08.17 - 20:55
Elvar Geir Magnússon

Óli Palli: Klúbbnum hefur vantað hægri kantmann síðan ég spilaði

Auglýsing
Kristján Flóki með boltann í kvöld.

Kristján Flóki með boltann í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH tókst ekki að slá út Maribor í kvöld. Eftir 1-0 tap í Slóveníu náði FH ekki að skapa sér almennileg færi í Krikanum og fékk á sig mark í uppbótartíma svo Maribor vann samtals 2-0 sigur.
„Við héldum þessu á lífi lengi. Við vissum að við myndum ekki skapa urmul af færum en við þurfum að nýta þau færi sem við fáum. Það er kannski munurinn á liðunum. Nýtingin hjá þeim var betri en leikur okkar í dag var frábær, eftir skipulagi og öðru,\" sagði Ólafur Páll.

„Lið eins og Maribor var búið að skipuleggja sig vel fyrir okkur. Þeir vissu styrkleika okkar í föstum leikatriðum og náðu bara að loka mjög vel á það. Það ber að bera virðingu fyrir því.\"

FH fer í umspil um sæti í Evrópudeildinni og Ólafur Páll talar meira um leikjaálagið framundan í viðtalinu og nýju leikmennina tvo sem komu í lok félagsskiptagluggans. Annar þeirra er í hægri kantmaður.

„Klúbbnum hefur vantað hægri kantmann síðan ég var að spila hérna á sínum tíma,\" sagði Ólafur en viðtalið má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.