Fotbolti.net
21.07.26 - 16:44
Elvar Geir Magnússon

Haaland heldur upp á afmælið á Sardiníu

Haaland nýtur sín vel í Sardiníu.

Haaland nýtur sín vel í Sardiníu.

Canon

Mynd: Instagram

Norski sóknarmaðurinn Erling Haaland heldur upp á 26 ára afmæli sitt í dag en hann er í sumarfríi eftir þátttöku á HM.

Þessi öflugi markahrókur Manchester City átti virkilega gott mót með Noregi og er kominn í verðskuldað frí.

Hann er með kærustu sinni Isabel Haugseng Johansen og vinum þeirra í Sardiníu á Ítalíu þar sem þau láta fara vel um sig um borð í snekkju.
Isabel sýndi á Instagram mynd af hlaðborðinu sem Haaland gæddi sér á í tilefni afmælisins og það er ekki af verri endanum; grillað kjöt á beini, fjall af pylsum, pönnukökur, egg, beyglur, ávextir og bakkelsi af ýmsu tagi.

Sjálfur birti Haaland mynd á samfélagsmiðlum af sjálfum sér með víkingahjálm.

Fjölmiðlar hafa fjallað mikið um mataræði Haaland en hann er naut að burðum og innbyrðir um sex þúsund hitaeiningar á dag. Hann borðar nautalifur, hjörtu, mikið af kjöti og er duglegur að drekka mjólk.
Haaland heldur upp á afmælið á Sardiníu
Canon

Mynd: Instagram

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.