Fotbolti.net
21.07.26 - 18:13
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Anderson: Nottingham Forest mun alltaf eiga sérstakan stað í hjarta mínu

Anderson: Nottingham Forest mun alltaf eiga sérstakan stað í hjarta mínu
Canon

Mynd: EPA

Elliot Anderson gekk til liðs við Man City frá Nottingham Forest fyrir 116 milljónir punda fyrr í þessum mánuði. Hann er dýrasti enski leikmaður sögunnar en Morgan Rogers er að bæta metið þar sem hann á leið til Chelsea fyrri 117 milljónir punda.
Anderson er 23 ára gamall miðjumaður en hann gekk til liðs við Forest frá Newcastle árið 2024. Hann hjálpaði Forest að komast alla leið í undanúrslit Evrópudeildarinnar á síðustu leiktíð.

Hann sendi kveðju á félagið á X í dag.

„Í fyrsta lagi ere ég þakklátur fyrir ástina og stuðninginn sem þið hafið sýnt mér síðustu tvö ár, sérstaklega undir lok síðasta tímabils. Ég varð ástfanginn frá fyrstu mínútu," skrifar Anderson.

„Ég vil þakka starfsfólkinu og leikmönnum fyrir móttökurnar og að gera tímann minn hér ánægjuleegan, þetta félag gaf mére tækifæri til að vaxa sem leikmaður og manneskja. Notttingham Forest mun alltaf eiga sérstakan stað í hjarta mínu. Takk fyrir allar ógleymanlegu minningarnar."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.