Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mán 02. ágúst 2021 19:33
Victor Pálsson
Livramento keyptur til Southampton (Staðfest)
Mynd: Southampton
Southampton er búið að tryggja sér bakvörðinn Tino Livramento en hann kemur til félagsins frá Chelsea.

Um er að ræða efnilegan 18 ára gamlan leikmann sem önnur félög sýndu áhuga í sumarglugganum.

Livramento er U20 landsliðsmaður Englands og fékk pláss á bekknum í leikjum Chelsea á síðustu leiktíð.

Chelsea var hins vegar opið fyrir því að selja í sumar og gerir hann fimm ára samning við Dýrlingana.

Talið er að Southampton borgi um sex milljónir evra fyrir strákinn sem getur einnig leikið á miðjunni.
Athugasemdir
banner
banner
banner