Fotbolti.net
02.09.17 - 19:04
Elvar Geir Magnússon

Björn Bergmann: Ég sá boltann inni

Auglýsing
Björn Bergmann í leiknum.

Björn Bergmann í leiknum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Björn Bergmann Sigurðarson kom af bekknum gegn Finnum i dag og náði að skapa sér hörkufæri sem ekki nýttist. Varnarmaður Finna náði að kasta sér fyrir boltann.

„Ég sá hann inni en svo kemur einhver leikmaður þarna og skutlar sér fyrir. Ég þarf eiginlega að sjá þetta aftur til að gera mér grein fyrir þessu,\" sagði Björn.
„Þetta er rosalega svekkjandi. Við börðumst eins og ljón nánast allan leikinn og vorum óheppnir að ná ekki að skora. Þetta var svona kvöld að þó við hefðum spilað þrjá samtengda leiki hefðum við ekki skorað.\"

„Á morgun kemur nýr dagur. Þetta verður gleymt í kvöld og við lærum bara af mistökunum.\"

Sjáðu viðtalið í heild í sjónvarpinu hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.