Fotbolti.net
18.07.26 - 18:28
Ívan Guðjón Baldursson

2. deild: Fjölnir steinlá í Grenivík

2. deild: Fjölnir steinlá í Grenivík
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Magni 5 - 2 Fjölnir
1-0 Tómas Örn Arnarson ('10 )
1-1 Egill Otti Vilhjálmsson ('11 )
1-2 Árni Steinn Sigursteinsson ('22 )
2-2 Guðni Sigþórsson ('50 )
3-2 Gunnar Darri Bergvinsson ('69 )
4-2 Kristinn Örn Ægisson ('81 )
5-2 Viðar Már Hilmarsson ('90 )
Toppbaráttulið Fjölnis heimsótti botnlið Magna í 2. deild karla í dag og þurfti á sigri að halda. Úr varð afar fjörugur leikur þar sem Tómas Örn Arnarson náði forystunni snemma leiks fyrir Grenvíkinga.

Gestirnir úr Grafarvogi svöruðu þó af krafti. Egill Otti Vilhjálmsson var eldfljótur að jafna metin áður en Árni Steinn Sigursteinsson náði forystunni.

Staðan var 1-2 í leikhlé og breyttist gangur leiksins í síðari hálfleik. Guðni Sigþórsson jafnaði fyrir Grenvíkinga áður en Gunnar Darri Bergvinsson endurheimti forystuna.

Fjölnismenn tóku að sækja meira á lokakaflanum en vörnin opnaðist og nýtti Magni sér það. Kristinn Örn Ægisson og Viðar Már Hilmarsson settu sitthvort markið til að innsigla 5-2 sigur.

Magni skýst þar með upp úr botnsætinu og er núna með 14 stig eftir 13 umferðir. Grenvíkingar fara upp um þrjú sæti við sigurinn.

Fjölnir er 5. sæti með 18 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.