Besta deildin: Íslandsmeistararnir töpuðu á Akureyri

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Mynd: Samsett/Þór

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þór 2 - 1 Víkingur R.
1-0 Ágúst Eðvald Hlynsson ('82)
2-0 Gyrðir Hrafn Guðbrandsson ('88)
2-1 Daði Berg Jónsson ('90)
1-0 Ágúst Eðvald Hlynsson ('82)
2-0 Gyrðir Hrafn Guðbrandsson ('88)
2-1 Daði Berg Jónsson ('90)
Lestu um leikinn: Þór 2 - 1 Víkingur R.
Afar óvænt úrslit litu dagsins ljós er Þór tók á móti Íslandsmeisturum Víkings R. á Akureyri í fyrri leik dagsins í Bestu deild karla.
Það ríkti mikið jafnræði með liðunum framan af en Víkingar, sem eru þreyttir eftir mikinn hamagang í Evrópu, voru sterkari aðilinn undir lok fyrri hálfleiks. Það var lítið um færi og var staðan markalaus í leikhlé.
Bæði lið gerðu tvöfalda skiptingu í hálfleik og var seinni hálfleikurinn áfram bragðdaufur.
Gestirnir úr Fossvogi gerðu sig líklegri til að taka forystuna er tók að líða á leikinn en þeir náðu ekki að stýra boltanum í netið. Þess í stað skoruðu heimamenn gegn gangi leiksins, eftir hornspyrnu,. Boltinn féll fyrir Ágúst Eðvald Hlynsson á fjærstönginni sem gerði vel að klára með marki.
Víkingar blésu til sóknar eftir að hafa lent undir og voru hársbreidd frá því að skapa sér dauðafæri áður en Þórsarar tvöfölduðu forystuna. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson, sem kom á láni frá KR á dögunum og var að spila sinn fyrsta leik fyrir Þór, átti frábæra frumraun. Hann var gríðarlega öflugur í dag og kórónaði góða frammistöðu með skallamarki eftir fyrirgjöf á 88. mínútu.
Gestirnir voru fljótir að minnka muninn og skoraði Daði Berg Jónsson í sínum fyrsta leik í rúmt ár eftir slæm meiðsli. Daði Berg kom inn af bekknum og gerði vel að skalla góða fyrirgjöf í netið.
Það var mikil spenna í sex mínútna uppbótartíma en ekki tókst Víkingum að jafna metin, svo lokatölur urðu 2-1. Þarna var botnlið deildarinnar að leggja toppliðið að velli. Fyrsta tap Víkings í deildinni staðreynd.
Nýliðar Þórs eru áfram á botninum, nú með 11 stig eftir 15 umferðir.
Víkingur trónir áfram á toppnum, með 40 stig eftir 15 leiki. Þetta er fyrsti tapleikur Víkings á deildartímabilinu og þriðji sigur Þórs. Þetta er fyrsti sigur Þórs í Bestu deildinni síðan í apríl.