Fotbolti.net
18.07.26 - 17:49
Ívan Guðjón Baldursson

Hlín skoraði í fyrsta leik - Stórsigrar hjá Kristianstad og Freiburg

Hlín skoraði í fyrsta leik - Stórsigrar hjá Kristianstad og Freiburg
Canon

Mynd: Malmö

Hertz
Nokkrar íslenskar atvinnukonur komu við sögu í æfingaleikjum dagsins víða um Evrópu og skoraði Hlín Eiríksdóttir í frumraun sinni með Malmö.
Malmö mætti danska stórveldinu Bröndby og skoraði Hlín eina mark liðsins í 1-1 jafntefli. Hafrún Rakel Halldórsdóttir er á mála hjá Bröndby.

Alexandra Jóhannsdóttir og Elísa Lana Sigurjónsdóttir voru þá í byrjunarliði Kristianstad sem rúllaði yfir Göteborg með sex mörkum gegn engu.

Ingibjörg Sigurðardóttir var ekki í hóp í stórsigri Freiburg gegn Luzern og að lokum tapaði FC Kaupmannahöfn gegn Rosengård, en Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir er mikilvægur hlekkur í liði FCK.

Angel City og Utah Royals mæta til leiks seint í kvöld í bandaríska kvennaboltanum.

Malmö 1 - 1 Bröndby
1-0 Hlín Eiríksdóttir ('53)
1-1 Sjálfsmark ('78)

Göteborg 1 - 6 Kristianstad

Luzern 1 - 5 Freiburg

Rosengard 3 - 2 Kobenhavn
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.