02.10.06 - 16:45
Magnús Már Einarsson
Gunnar Oddsson tekur við Þrótti (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Gunnar Oddsson sem hætti með lið Reynis Sandgerði í gærkvöldi er að taka við Þrótti úr fyrstu deild en þetta staðfesti hann við Fótbolti.net nú rétt í þessu.
Gunnar hefur unnið gott starf með Reyni og hefur komið liðinu upp úr þriðju deild upp í þá fyrstu á undanförnum tveimur árum en hann mun mæta sínum gömlu félögum með Þrótti í fyrstu deildinni næsta ári.
Hann tekur við Þrótturum af Atla Eðvaldssyni sem hætti á dögunum sem þjálfari liðsins eftir að hafa verið þar í um það bil eitt og hálft ár en liðið endaði í fjórða sæti í fyrstu deildinni í sumar.
Gunnar þjálfaði Keflavík frá 1997-1999 ásamt Sigurði Björgvinssyni og þá tók hann við liðinu 15.ágúst 2000 og stýrði því út tímabilið.
Gunnar er einn af leikjahæstu mönnum Íslandsmótsins frá upphafi en hann lék á sínum tíma 305 leiki á Íslandsmótinu og spilaði hann lengst af með Keflavík eða 177 leiki.
Þá lék Gunnar 81 leik með KR og 36 leiki með Leiftri. Síðast spilaði hann í fyrra þegar hann lék einn leik í þriðju deildinni með Reyni.