Fotbolti.net
02.11.05 - 01:21

Helgi Valur Daníelsson til Öster (Staðfest)

Helgi Valur Daníelsson til Öster (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Helgi Valur Daníelsson landsliðsmaður í knattspyrnu hefur skrifað undir hjá sænska úrvalsdeildarliðinu Öster og mun hann spila með þeim á næstu leiktíð. Þetta kom fram á heimasíðu sænska liðsins en það leikur í 1. deildinni á næstu leiktíð eftir að hafa komist upp núna á haustdögum.
Helgi fór til reynslu hjá Öster núna í lok október eftir að mörg lið á Norðurlöndunum höfðu sýnt honum áhuga. Öster sýndi svo áhuga á því að semja við Helga Val sem nú hefur gengið eftir.

Helgi bætist þar með í sterkan hóp leikmanna sem Fylkismenn hafa misst eftir sumarið og er verk að vinna fyrir Árbæjarliðið að stoppa í stór götin. Eric Gustafsson er farinn til Svíþjóðar, Peter Tranberg til Danmerkur, Finnur Kolbeinsson og Gunnar Þór Pétursson eru hættir, Björgólfur Takefusa fór í KR, Valur Fannar Gíslason í Val og Viktor Bjarki Arnarson í Víking (til baka úr láni).

Helgi er fyrsti leikmaðurinn sem fenginn er til liðsins fyrir næsta ár og ríkir mikil kátína þar á bæ með fenginn: ,,“Helgi er góður leikmaður sem kemur með heilmikla reynslu, þó svo hann sé ekki ýkja gamall. Hann hefur þar að auki mikla leiðtogahæfni,” sagði þjálfari Öster, Lasse Jacobsson.

Helgi Valur bætist nú í hóp fimm annarra íslendinga sem spilað hafa með Öster í gegnm tíðina. Sá þekktasti þar á bæ er markahrókurinn Teitur Þórðarson en hann þjálfar nú KR. þá hafa bróðursonur Teits, Stefán Þórðarson, Guðmundur Steinsson, Stefán Magnússon, og Þorvaldur Makan Sigbjörnsson allir spreytt sig hjá Öster.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.