Fotbolti.net
02.11.05 - 17:59

Þórður Guðjónsson til ÍA (Staðfest)

Þórður Guðjónsson til ÍA (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

Þórður Guðjónsson hefur ákveðið að ganga til liðs við sitt gamla félag ÍA. Eiríkur Guðmundsson formaður Meistaraflokksráðs ÍA staðfesti þetta við Fótbolta.net rétt í þessu en Þórður mun skrifa undir á blaðamannafundi á morgun.
Þetta eru frábærar fréttir fyrir Skagamenn enda er Þórður farsæll leikmaður sem kemur til með að styrkja liðið svo um munar. Þórður sem er 32 ára gamall hefur verið atvinnumaður í fótbolta í tólf ár nú síðast hjá Stoke City á Englandi en hann komst að samkomulagi við félagið um að rifta samningnum fyrir stuttu.

Þórður hefur á atvinnumannaferlinum leikið meðal annars með Bochum, Genk og Derby County en hann hefur aðeins leikið með ÍA og KA hér á landi en hann er uppalinn á Akranesi. Hann var markakóngur með ÍA í efstu deild hér á landi árið 1993 og á að baki 58 landsleiki fyrir Íslands hönd og hefur skorað í þeim 13 mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.