02.11.06 - 13:58
Magnús Már Einarsson
Einar Örn Einarsson til Keflvíkinga (Staðfest)

Einar Örn ásamt Rúnari Arnarsyni formanni knattspyrnudeildar Keflavíkur.

Mynd: Jón Örvar Arason

Einar Örn ásamt Rúnari Arnarsyni formanni knattspyrnudeildar Keflavíkur.

Mynd: Jón Örvar Arason
Sóknarmaðurinn Einar Örn Einarsson hefur gengið til liðs við VISA-bikarmeistara Keflvíkinga og gert þriggja ára samning við félagið. Einar Örn kemur frá Leikni en hann verður samningslaus síðar á árinu.
Einar sem er 23 ára er uppalinn hjá Leikni og hefur hann skorað 44 mörk í 99 leikjum fyrir félagið á undanförnum árum en þessi baráttuglaði leikmaður skoraði sex mörk í sautján leikjum í fyrstu deildinni í sumar.
Samkvæmt heimasíðu Keflvíkinga lýsti Einar mikilli ánægju með að vera kominn til Keflavíkur þegar hann skrifaði undir samninginn og það væri ögrandi verkefni að leika með félaginu í efstu deild.
Samkvæmt heimasíðu Keflvíkinga lýsti Einar mikilli ánægju með að vera kominn til Keflavíkur þegar hann skrifaði undir samninginn og það væri ögrandi verkefni að leika með félaginu í efstu deild.
Heimild: Heimasíða Keflavíkur
