Fotbolti.net
02.11.07 - 15:59
Magnús Már Einarsson

Albert Brynjar Ingason í Val (Staðfest)

Albert Brynjar Ingason í Val (Staðfest)
Canon

Mynd: Valur

Framherjinn Albert Brynjar Ingason hefur farið í Val úr Fylki en hann gerir þriggja ára samning við Hlíðarendafélagið.
„Það er bara allt spennandi við þennan klúbb. Þeir eru meistarar og svo er það Evrópukeppninn, aðstæðan og bara allur pakkinn,“ sagði Albert Brynjar sem hefur leikið nánast alla sína tíð með Fylki.

„Ég fór á fyrstu æfinguna mína hjá Val þegar ég var pínulítill. Síðan nennti mamma ekki að keyra mig þannig að ég fór bara í Fylki,“ sagði Albert en hann hefur búið í Árbænum alla sína tíð.

Albert er 21 árs og hefur leikið fjölda leikja með yngri landsliðum hann skoraði fimm mörk í sumar en var með brjósklos í byrjun tímabils og byrjaði því seint. „Ég spilaði minn fyrsta leik á móti Val í seinni umferðinni, það var fínn seinni hálfleikur hjá okkur,“ sagði Albert og hló en Fylkir sigruðu Val í þeim leik 4:2 eftir að hafa verið undir 2:1 í hálfleik.

Albert er sonur Inga Björns Albertssonar sem lék með Valsmönnum í eina tíð. Var hann eitthvað að ýta á Albert? „Nei alls ekki það eru aðallega þeir kostir sem ég nefndi áðan sem heilluðu mig. Valur er stærsti klúbburinn í dag.“

Albert er sóknarmaður og er því að berjast við Helga Sig og Guðmund Benediktsson um sæti í framlínu Valsmanna. „Það er bara undir mér komið hvort ég eigi eitthvað erindi þarna, en maður verður að hafa trú á þessu.“

Guðmundur Benediktsson er giftur systur Alberts og þeir eru því mágar. „Ég kannast því aðeins við Gumma,“ sagði Albert hlægjandi.

Aðspurður að því hvort hann sé farinn að huga að atvinnumennsku segir Albert. „Maður verður bara að taka eitt skref í einu. Valur er spennandi klúbbur og ég hlakka til að spila með þeim.“
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.