02.11.07 - 18:23
Hafliði Breiðfjörð
Laufey og Thelma Ýr ganga í raðir Fylkis (Staðfest)

Thelma Ýr Gylfadóttir í leik með Val.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Thelma Ýr Gylfadóttir í leik með Val.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fylkir fékk í dag góðan liðsstyrk fyrir baráttuna í Landsbankadeild kvenna á næstu leiktíð þegar tvær stúlkur úr U19 ára landsliði Íslands gengu í raðir félagsins. Þetta eru þær Laufey Björnsdóttir sem kemur frá Breiðablik og Thelma Ýr Gylfadóttir sem kemur úr Val.
Laufey Björnsdóttir sem er 18 ára gömul kemur til Fylkis frá Breiðablik. Hún kom til Breiðabliks frá KA á Akureyri fyrir tveimur árum og í sumar hafði hún unnið sér fast sæti í byrjunarliðinu hjá Breiðablik.
Hún lék alla 16 leiki Breiðabliks í Landsbankadeild kvenna í sumar og skoraði í þeim fjögur mörk auk þess sem hún lék einn leik með liðinu í VISA-bikarnum. Hún hefur leikið 36 leiki í Landsbankadeildinni fyrir Breiðablik og Þór/KA og hefur skorað í þeim 11 mörk. Hún hefur leikið 18 leiki fyrir U19 ára landslið Íslands og hefur skorað í þeim þrjú mörk auk 11 leikja fyrir U17 ára landsliðið.
Thelma Ýr Gylfadóttir sem einnig er 18 ára gömul kemur frá Val til Fylkis. Hún hafði gengið í raðir Vals frá ÍA í lok ársins 2005 en hefur ekki náð að festa sig í sessi í liði Vals. Hún lék fimm leiki með Val í Landsbankadeildinni í sumar. Í heildina lék hún á tveimur tímabilum 16 leiki fyrir Val og skoraði í þeim fimm mörk, öll á síðasta sumri.
Í heildina á hún að baki 25 leiki í Landsbankadeild kvenna fyrir Val og ÍA og hefur skorað í þeim átta mörk auk þess sem hún hefur leikið 10 leiki í 1. deild kvenna. Hún hefur leikið 5 leiki fyrir U19 ára landslið Íslands þar sem hún hefur skorað eitt mark auk fjögurra leikja í U17 ára landsliðinu.