Fotbolti.net
02.12.05 - 15:12
Elvar Geir Magnússon

Brynjar Þór Gestssson til ÍBV (Staðfest)

Brynjar Þór Gestssson til ÍBV (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Brynjar Þór Gestsson hefur fengið félagaskipti yfir í ÍBV og mun leika með liðinu á Íslandsmótinu innanhúss sem fram fer um helgina. Brynjar hefur þjálfað Huginn Seyðisfirði undanfarin ár auk þess að spila með liðinu. Hann hætti hjá félaginu eftir sumarið.
Hann ætlaði að verða aðstoðarmaður Gústafs Adolfs Björnssonar hjá Haukum en hætti fljótlega eftir að hafa tekið við því starfi. Í samtali við Fótbolti.net sagðist Brynjar ætla að láta reyna á skrokkinn og ætlar hann að æfa vel með ÍBV í vetur en liðið leikur í Landsbankadeildinni.

Brynjar sem er 31 árs er fjölhæfur leikmaður en undir hans stjórn komst Huginn upp úr 3. deildinni í fyrra og hafnaði í áttunda sæti 2. deildarinnar nú í sumar. Hann spilaði tólf leiki með félaginu í sumar og skoraði tvö mörk en hyggst aðeins leika með ÍBV og mun ekki taka að sér neina þjálfun hjá félaginu.

Á þriðjudaginn lék hann fyrsta leik sinn fyrir ÍBV þegar félagið vann Leikni Reykjavík í æfingaleik í Breiðholti 3-2.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.