02.12.07 - 19:19
Magnús Már Einarsson
Alfreð Elías í Víking Ólafsvík (Staðfest)

Alfreð fagnar marki með Njarðvík í sumar.

Mynd: Víkurfréttir/Jón Björn Ólafsson

Alfreð fagnar marki með Njarðvík í sumar.

Mynd: Víkurfréttir/Jón Björn Ólafsson
Framherjinn Alfreð Elías Jóhannsson skrifaði í dag undir eins árs samning við Víking Ólafsvík en hann kemur til liðsins frá Njarðvík.
,,Mér líst mjög vel á þetta. Ég held að hérna sé góður þjálfari og gott og ungt lið," sagði Alfreð við Fótbolta.net í dag.
Alfreð Elías sem er 31 árs gamall skoraði sjö mörk í 21 leik í sumar með Njarðvíkingum.
Hann hefur leikið með Grindvíkingum mest allan sinn feril og skorað fimm mörk í 36 leikjum í efstu deild en á ferlinum hefur hann einnig leikið með GG og Sindra.