03.01.06 - 17:52
Magnús Már Einarsson
Riera til Manchester City (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Manchester City hefur fengið miðjumanninn Albert Riera að láni frá Espanyol út þessa leiktíð og auk þess hefur City möguleika á að kaupa leikmanninn á 3,5 milljónir punda næsta sumar.
Riera sem er fyrrum leikmaður Mallorca kom til Espanyol í sumar frá Bordeaux en hann hefur fengið fá tækifæri og aðeins leikið fjóra leiki á tímabilinu.
,,Við höfum að litlu að tapa en öllu að vinna. Ég gat ekki lofað honum mínútur og ég skil að Riera hafi haft tilboð sem gæti opnað dyr fyrir hann auk þess sem hann fengi betur borgað" sagði Miguel Angel Lotina þjálfari Espanyol við Marca.
,,Að auki hefur hann möguleika á að koma aftur hingað í júní eða klára félagaskiptin ef þeir kaupa hann. Leikmennirnir eru þeir sem ákveða framtíð sína og það er ekki undir þjálfurunum komið,"