Fotbolti.net
03.01.20 - 11:15
Elvar Geir Magnússon

Aston Villa hefur áhuga á Batshuayi

Michy Batshuayi.

Michy Batshuayi.

Canon

Mynd: Getty Images

Í morgun var tilkynnt að brasilíski sóknarmaðurinn Wesley hjá Aston Villa yrði frá út tímabilið eftir að hafa meiðst í tæklingu frá Ben Mee í 2-1 sigri Villa gegn Burnley á nýarsdag.

Wesley skoraði sitt fimmta úrvalsdeildarmark á tímabilinu í leiknum.
Villa ætlar að reyna að fá inn sóknarmann í janúarglugganum og þar er belgíski landsliðsmaðurinn Michy Batshuayi hugsanlegur kostur.

Batshuayi er geymdur á bekknum hjá Chelsea en annar sóknarmaður liðsins, Olivier Giroud, sem einnig fær lítinn spiltíma er líka orðaður við Aston Villa í slúðurpakka dagsins.

Villa er í 17. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, stigi frá fallsæti. Dean Smith, stjóri liðsins, hyggst fara út á leikmannamarkaðinn í þessum mánuði.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton11+1722
3Man City11+822
4Liverpool11+821
5Bournemouth11+418
6Brentford11+917
7Leeds11+517
8Chelsea11016
9Everton11-216
10Tottenham11+115
11Hull City11+214
12Aston Villa11-314
13Newcastle11-313
14Coventry11-812
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd11-98
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.