Fotbolti.net
03.01.20 - 09:48
Elvar Geir Magnússon

Áfall fyrir Villa - Heaton og Wesley meiddir út tímabilið

Wesley meiddist illa.

Wesley meiddist illa.

Canon

Mynd: Getty Images

Tveir leikmenn Aston Villa meiddust illa í 2-1 sigrinum gegn Burnley á miðvikudaginn og ljóst er að þeir verða báðir á meiðslalistanum út tímabilið.

Um er að ræða brasilíska sóknarmanninn Wesley og markvörðinn reynslumikla Tom Heaton. Báðir sködduðu liðbönd í hné og verða frá í sex til níu mánuði.

Wesley skoraði fyrra mark Villa á miðvikudag en meiddist í tæklingu frá Ben Mee, varnarmanni Burnley. Ekki var dæmt brot á Mee en Villa-menn voru bálreiðir vegna tæklingarinnar.
Heaton meiddist þegar hann reyndi að koma í veg fyrir mark Chris Wood seint ´ileiknum.

Aston Villa er stigi fyrir ofan fallsæti og hörð fallbarátta framundan.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.