Heimild: Víkingur
Helena Ósk Hálfdánardóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við Víking. Hún gengur til liðs við félagið frá Val.
Helena er fædd árið 2001 og er uppalin í FH. Hún hefur einnig leikið með Fylki og Breiðabliki ásamt Val. Hún hefur spilað 197 leiki og skorað 39 mörk.
Þá á hún 23 landsleiki að baki fyrir yngri landslið Íslands og skorað fjögur mörk.

„Við erum mjög ánægð að fá Helenu í Hamingjuna. Helena er frábær sóknarmaður sem getur spilað allar 3 fremstu stöðurnar á vellinum og með góðan hægri fót. Hún passar vel inní hópinn okkar, leikmaður með reynslu en einnig með hungur í að gera betur.
Hjartanlega velkomin í Hamingjuna Helena," sagði Einar Guðnason, þjálfari Víkings.
Athugasemdir