Nökkvi Þeyr Þórisson hefur skrifað undir lánssamning hjá hollenska liðinu Telstar út tímabilið. Hann kemur frá Sparta Rotterdam.
Telstar er á botninum í efstu deild, tveimur stigum frá öruggu sæti, en Sparta er í 5. sæti í sömu deild og í mikill Evrópubaráttu.
Telstar er á botninum í efstu deild, tveimur stigum frá öruggu sæti, en Sparta er í 5. sæti í sömu deild og í mikill Evrópubaráttu.
Nökkvi er 26 ára gamall framherji en hann gekk til liðs við Sparta Rotterdam frá St. Louis City í Bandaríkjunum í janúar í fyrra. Hann hefur spilað 23 leiki og skorað fjögur mörk fyrir Sparta.
Nökkvi er alinn upp á Dalvík en færði sig í KA árið 2019. Hann sló í gegn árið 2022 þegar hann skorað 17 mörk fyrir KA í deildinni og fór til Beerschot í Belgíu í kjölfarið.
Athugasemdir



