03.04.07 - 14:16
Magnús Már Einarsson
Christopher McCluskey í Aftureldingu (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson


Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Afturelding úr annarri deild hefur fengið skoska markvörðinn Christopher McCluskey sem lék með Reyni Sandgerði í annarri deildinni síðastliðið sumar.
McCluskey sem verður tvítugur á þessu ári lék tíu leiki með Reyni Sandgerði er liðið vann sér sæti í fyrstu deildinni síðastliðið sumar en hann lék í heimalandi sínu Skotlandi í einhvern tíma í vetur.
McCluskey hefur þegar fengið leikheimild með Aftureldingu og er hann löglegur með liðinu gegn Víkingi Ólafsvík í Lengjubikarnum á fimmtudaginn.
McCluskey hefur þegar fengið leikheimild með Aftureldingu og er hann löglegur með liðinu gegn Víkingi Ólafsvík í Lengjubikarnum á fimmtudaginn.
