03.04.08 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Laurent Robert til Toronto (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Franski kantmaðurinn Laurent Robert hefur fengið sig lausan undan samningi hjá Derby County og gengið til liðs við Toronto frá Kanada.
Robert, sem er 32 ára, var einn þeirra leikmanna sem Paul Jewell fékk til Derby í janúar en hann lék einungis þrjá leiki fyrir félagið.
Robert hefur einnig leikið með Portsmouth og Newcastle á Englandi en hjá síðarnefnda liðinu vann hann með John Caver, þjálfara Toronto.
,,Ég hef eytt miklum tíma með Laurent og þekki leik hans. Hann verður mikill liðsstyrkur," sagði Caver.
Robert hefur auk þess að leika á Englandi leikið með Benfica í Portúgal og Levante á Spáni svo eitthvað sé nefnt.

Heimild: BBC