Margrét Lára Viðarsdóttir er komin til baka. Hún sleit krossband vorið 2017 og í fyrra var hún í barneignaleyfi. Hún spilaði ekkert í fyrra og það verður mikill liðsstyrkur fyrir Val að fá þennan magnaða framherja aftur.
Valur hefur leik í Pepsi Max-deild kvenna í dag í stórleik umferðarinnar gegn Þór/KA.
„Það er mikil tilhlökkun og ég held að þetta verði bæði skemmtilegt og krefjandi sumar," sagði Margrét Lára við Fótbolta.net.
„Þegar þú ert ekki búin að spila alvöru fótbolta í að verða tvö ár þá er óneitanlega mikill fiðringur í manni. Það á líka við allt liðið. Veturinn er langur og við erum spenntar að byrja."
Valsstelpum er spáð Íslandsmeistaratitlinum á Fótbolta.net. og miklar væntingar eru gerðar til liðsins.
„Spá er bara spá. Við ætlum okkur að vera í toppbaráttunni en það eru líka fleiri lið. Blikar eru handhafar allra titla. Það er okkar hinna að elta þær. Við sjáum hvað gerist, en við ætlum okkur að sjálfsögðu titilinn."
Valur er Íslandsmeistari í bæði handbolta og körfubolta kvenna. Fótboltastelpurnar ætla sér líka titilinn.
„Ekki spurning. Valur hefur ekki unnið titil í kvennafótbolta síðan 2012. Hungrið er mikið, en við verðum að halda rétt á spöðunum," sagði Margrét Lára sem er 100% tilbúin.
Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
























