Fotbolti.net
12.07.26 - 23:16
Ívan Guðjón Baldursson

3. deild: KH og Tindastóll halda pressunni - Björn Daníel með tvennu

3. deild: KH og Tindastóll halda pressunni - Björn Daníel með tvennu
Canon

Mynd: Tindastóll

Það fór þrír leikir fram í 3. deildinni í dag þegar toppbaráttulið Tindastóls og KH unnu útileiki.
Tindastóll er í öðru sæti með 25 stig eftir 12 umferðir. Sauðkrækingar heimsóttu Ými og náðu forystunni í upphafi síðari hálfleiks.

Steingrímur Dagur Stefánsson jafnaði fyrir Ými á 55. mínútu en það dugði ekki til því Matheus Gotler skoraði það sem reyndist sigurmarkið þrettán mínútum síðar. Lokatölur 1-2 og situr Ýmir eftir með 12 stig, fjórum stigum fyrir ofan fallsvæðið.

KH skoraði fimm mörk gegn Sindra í stórskemmtilegum leik á Höfn í Hornafirði. Heimamenn komust í tveggja marka forystu snemma leiks, þeir náðu forystunni með sjálfsmarki á upphafsmínútunni og tvöfaldaði Björn Daníel Sverrisson forystuna en gestirnir voru fljótir að svara fyrir sig.

Alexander Lúðvígsson minnkaði muninn áður en Haukur Ásberg Hilmarsson setti tvennu svo staðan var orðin 2-3 í leikhlé.

Björn Daníel jafnaði stöðuna í upphafi síðari hálfleiks en Alexander endurheimti forystu gestanna áður en Jón Örn Ingólfsson innsiglaði sigurinn á lokamínútunum. Lokatölur 3-5.

KH er með 24 stig, einu stigi á eftir Tindastóli og toppliði Víðis sem á leik til góða.

KF og Höttur gerðu að lokum markalaust jafntefli í miklum baráttuleik þar sem sitthvort liðið missti mann af velli með rautt spjald í uppbótartímanum. Marinó Snær Birgisson, leikmaður utan hóps hjá KF, krækti sér einnig í rautt spjald.

Bæði lið eru um miðja deild, KF með 17 stig og Höttur 15.

Ýmir 1 - 2 Tindastóll
0-1 Svend Emil Busk Friðriksson ('48 )
1-1 Steingrímur Dagur Stefánsson ('55 )
1-2 Matheus Bettio Gotler ('68 )

Sindri 3 - 5 KH
1-0 Bjarmi Kristinsson ('1 , sjálfsmark)
2-0 Björn Daníel Sverrisson ('7 )
2-1 Alexander Lúðvígsson ('12 )
2-2 Haukur Ásberg Hilmarsson ('25 )
2-3 Haukur Ásberg Hilmarsson ('30 )
3-3 Björn Daníel Sverrisson ('53 )
3-4 Alexander Lúðvígsson ('67 )
3-5 Jón Örn Ingólfsson ('86 )

KF 0 - 0 Höttur
Rautt spjald: Grétar Áki Bergsson, KF ('92)
Rautt spjald: Dagur Logi Sigurðsson, Höttur ('92)
3. deild: KH og Tindastóll halda pressunni - Björn Daníel með tvennu
Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

3. deild: KH og Tindastóll halda pressunni - Björn Daníel með tvennu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víðir11+1425
2Tindastóll12+1025
3KH12+1824
4KV12-121
5Reynir S.11+720
6KF12+117
7Höttur12+115
8Augnablik11-114
9Ýmir12-512
1012-1410
11Sindri12-168
12Árbær11-145
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.