Fotbolti.net
13.07.26 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson

Kane kom Tuchel til varnar

Kane kom Tuchel til varnar
Canon

Mynd: EPA

Harry Kane, fyrirliði enska landsliðsins, kom landsliðsþjálfaranum Thomas Tuchel til varnar eftir umdeild ummæli sem hann lét falla í kjölfar naums sigurs gegn Norðmönnum í 8-liða úrslitum heimsmeistaramótsins um helgina.
Tuchel ekki ánægður - „Vorum nógu heppnir"
TENGT EFNI

Tuchel ekki ánægður - „Vorum nógu heppnir"

Englendingar lentu undir í fyrri hálfleik en Jude Bellingham jafnaði metin og gerði sigurmark í framlengingu, svo lokatölur urðu 2-1.

Tuchel var ósáttur með frammistöðu lærlinga sinna að leikslokum og svaraði Bellingham ummælum hans með sínum eigin ummælum.

Bellingham: Tuchel veit ekki hvernig það er að spila við þessar aðstæður
TENGT EFNI

Bellingham: Tuchel veit ekki hvernig það er að spila við þessar aðstæður



„Þegar hann sér okkur á æfingum þá sér hann hvað við getum gert. Hann sér hversu hæfileikaríkir við erum og hversu samheldinn hópurinn er. Hann vill sjá það sama í leikjum, hann vill sjá þessa útgáfu af okkur mæta til leiks. Hann veit alveg jafn vel og við allir að það er hægara sagt en gert, það er ekki einfalt að keppa við svona sterka andstæðinga," segir 32 ára Kane, sem verður 33 ára eftir tvær vikur.

„Hann er að reyna að draga fram gæðin í okkur, við vitum það alveg sjálfir að við getum spilað betur en við höfum verið að gera. Við getum spilað á hærra gæðastigi. Við erum ekki búnir að sýna hvað við getum raunverulega gert nema bara á stuttum köflum.

„Næstu leikir verða gegn bestu fótboltaþjóðum heims en við erum mjög ánægðir með sjálfa okkur. Við erum komnir í undanúrslitin og okkur líður eins og við eigum ennþá helling inni."
Kane kom Tuchel til varnar
Canon

Mynd: EPA

Kane kom Tuchel til varnar
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.