Fotbolti.net
12.07.26 - 22:27
Ívan Guðjón Baldursson
Í samstarfi við styrktaraðila

Bjóða Éderson nýjan samning

Bjóða Éderson nýjan samning
Canon

Mynd: EPA

Framtíð brasilíska miðjumannsins Éderson, 27 ára, er óljós en hann er gríðarlega eftirsóttur þessa dagana.
Hann er mikilvægur hlekkur í liði Atalanta á Ítalíu en er aðeins með eitt ár eftir af samningi við félagið.

Éderson fer ekki til Man Utd
TENGT EFNI

Éderson fer ekki til Man Utd



Manchester United var búið að ná samkomulagi við Atalanta um kaupverð fyrir brasilíska landsliðsmanninn en félagaskiptin eru ekki gengin í gegn. Fréttamaðurinn Fabrizio Romano segir að Man Utd hafi hætt við skiptin, en heimildarmenn Sky Sports hjá United neita fyrir það og segja læknisskoðun enn vera yfirstandandi.

Heimildarmenn hjá United hafna fréttaflutningi Romano
TENGT EFNI

Heimildarmenn hjá United hafna fréttaflutningi Romano



Nú greinir Romano frá því að Atalanta hefur ákveðið að bjóða Éderson nýjan fimm ára samning sem inniheldur væna launahækkun, en óljóst er hvort miðjumaðurinn muni taka því boði. Hann hefur meðal annars verið orðaður við Atlético Madrid og hin ýmsu úrvalsdeildarfélög eins og Newcastle og Tottenham. Einhverjir fjölmiðlar sögðu Arsenal og Liverpool einnig vera áhugasöm.
Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Bjóða Éderson nýjan samning
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.