Haddi: Frábært að fá þennan sigur sem við erum búnir að bíða lengi eftir
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KA vann dramatískan sigur á ÍA í kvöld. Fótbolti.net ræddi við Hallgrím Jónasson, þjálfara KA, eftir leikinn.
Lestu um leikinn: KA 3 - 2 ÍA
„Þetta eru búnir að vera dramatískir síðustu tveir leikir. Síðast töpuðum við á síðustu mínútu á móti Víkingi eftir frábæra frammistöðu. Í dag unnum við í lokin og það var gríðarlega sætt," sagði Haddi.
„ÍA skapaði ekki mikið framan af fannst mér. Fyrstu tvö mörkin sem við fáum á okkur var eins og ekta lið þar sem hlutirnir eru ekki alveg að ganga upp. Við nýbúnir að klúðra einn á móti markmanni og svo fá þeir víti sem var klaufalegt hjá okkur. Gaman að sjá þegar við lendum 2-0 undir eftir að við erum búnir að tapa sex leikjum að við höldum áfram og komum til baka. "
„í 2-2 erum það við sem ætlum okkur að vinna leikinn. Þvílíkt kredit til strákana að halda haus og halda áfram. Það er það sem hefur einkennt KA liðið. Þegar hefur gengið illa eins og gerist hjá liðum þá höfum við alltaf staðið saman og þannig komumst við úr þessu. Virkilega fallegt að sjá að allir leggja eitthvað á vogaskálarnar."
Sveinn Margeir Hauksson skoraði tvennu og Danijel Dejan Djuric kom að tveimur mörkum.
„VIð erum að fá fleiri sem skora mörk. Svenni var kominn með eitt og nú skorar hann tvö og klúðrar meira að segja einn á móti markmanni. Ég er ánægður fyrir hans hönd og þetta er mikilvægt fyrir liðið. Alltaf gott þegar strákarnir fram á við gera eitthvað, þeir þurfa alltaf á því að halda. Sama með Danijel. Hann leggur upp frábært mark og svo nær hann í vítið. Á 94. mínútu er hann að hlaupa inn í teig, togað í hann og víti. Vel gert hjá þeim, mikilvægt fyrir sjálfstraustið og frábært fyrir liðið að fá þennan sigur sem við erum búnir að bíða lengi eftir."