Fotbolti.net
13.07.26 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson

Messi mætir Englandi í fyrsta sinn: Verður gaman

Messi mætir Englandi í fyrsta sinn: Verður gaman
Canon

Mynd: EPA

Lionel Messi var kátur eftir 3-1 sigur ríkjandi heimsmeistara Argentínu gegn Sviss eftir framlengdan leik í 8-liða úrslitum heimsmeistaramótsins.
Argentína mætir Englandi í gríðarlega spennandi undanúrslitaleik og er Messi afar spenntur, en þetta verður í fyrsta sinn sem hann mætir Englandi á ferlinum.

„Það verður mjög sérstakt að mæta Englandi, þetta er í fyrsta sinn sem ég spila við þá! Ég held ég hafi spilað við nánast allar þjóðir í heimi á ferlinum, en ekki England," sagði Messi sem gaf ítölsku goðsögninni Roberto Baggio treyjuna sína eftir leikinn.

„England er með mjög sterkt lið og það verður virkilega gaman að mæta þeim. Þetta verður mjög spennandi leikur á milli tveggja fótboltaþjóða."

Messi hefur verið í miklu stuði hingað til á HM. Hann hefur verið að raða inn mörkum auk þess að gefa stoðsendingar og lagði hann fyrsta mark leiksins upp í sigrinum gegn Sviss.

Miðvörðurinn Cristian Romero átti erfitt með tilfinningarnar eftir lokaflautið gegn Sviss.

„Við munum gefa sálirnar okkar til að hafa betur gegn Englandi. Við erum tilbúnir að leggja líf okkar undir til að komast aftur í úrslitaleikinn."

Alvarez: Viljum vinna þetta mót fyrir Messi
TENGT EFNI

Alvarez: Viljum vinna þetta mót fyrir Messi

Messi mætir Englandi í fyrsta sinn: Verður gaman
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.