Club Brugge hafnaði opnunartilboði Barcelona

Mynd: Club Brugge

Mynd: Club Brugge
Spánarmeistarar Barcelona eru að reyna að kaupa kantmanninn unga Jesse Bisiwu úr röðum Belgíumeistara Club Brugge.

TENGT EFNI
Belgískt undrabarn á leið til Barcelona
Bisiwu er 18 ára gamall og þykir gríðarlega mikið efni. Hann á fimm leiki að baki fyrir U17 landslið Belgíu og lék fyrir Club NXT, varalið Club Brugge, á síðustu leiktíð.
Barcelona lagði fram opnunartilboð í Bisiwu á dögunum, sem hljóðaði upp á 9 milljónir evra, en Club Brugge sagði nei.
Diario Sport og Mundo Deportivo eru meðal fjölmiðla sem segja að Börsungar muni reyna aftur með endurbættu tilboði.
Samkvæmt fjölmiðlunum er Bisiwu búinn að gefa munnlegt samþykki fyrir félagaskiptum til Barcelona.
Bisiwu skoraði 3 mörk og gaf 1 stoðsendingu í 8 leikjum í Evrópukeppni unglingaliða á síðustu leiktíð. Honum tókst þó hvorki að skora né leggja upp með Club NXT í næstefstu deild í Belgíu.