Erkifjendur berjast um Gomes - Salah til Bandaríkjanna?

Joao Gomes gæti farið til Liverpool eða Man Utd

Mynd: EPA

Mo Salah er enn í leit að nýju félagi

Mynd: EPA

Ferran Torres til PSG?

Erkifjendur berjast um brasilískan landsliðsmann, Chelsea skoðar enskan vængmann og Mohamed Salah gæti endað í Bandaríkjunum. Þetta og svo margt fleira í Powerade-slúðurpakka dagsins.
Manchester United og Liverpool hafa bæði sett sig í samband við Joao Gomes (25), leikmann Wolves, eftir að félagaskipti hans til Atletico Madrid duttu upp fyrir. (Globo)
Chelsea hefur opnað viðræður við umboðsmenn enska vængmannsins Jonathan Rowe (23), sem er á mála hjá Bologna á Ítalíu. Hann gæti komið inn í stað Alejandro Garnacho (22), sem er á förum. (Il Resto del Carlino)
MLS-liðið Kansas City ætlar að reyna að fá egypska sóknarmanninn Mohamed Salah (34), sem yfirgaf Liverpool eftir síðasta tímabil. (Athletic)
Fjölmörg félög á Englandi eru að skoða norska landsliðsmanninn Patrick Berg (24) eftir frammistöðu hans á heimsmeistaramótinu. Coventry og West Ham eru á meðal þeirra sem hafa áhuga. (Teamtalk)
Everton vill fá Jacob Murphy (31) frá Newcastle United, en hann á eitt ár eftir af samningi sínum við félagið. (Talksport)
Real Madrid hefur bókað fund með Vinicius Jr (25) til að reyna að ganga frá framlengingu á samningi hans, þrátt fyrir fregnir um að félagið sé að íhuga að selja brasilíska sóknarmanninn. (AS)
Paris Saint-Germain hefur augastað á spænska sóknarmanninum Ferran Torres (26), sem er á mála hjá Barcelona, ef Bradley Barcola skyldi yfirgefa félagið í sumar. (L'Equipe)
Þá hafa Börsungar gengið frá samkomulagi við Borussia Dortmund um þýska sóknarmanninn Karim Adeyemi (24). (Marca)
Umboðsmaður argentínska sóknartengiliðsins Matias Soule (23), leikmanns Roma, hefur rætt við Sunderland og Fulham. (Corriere dello Sport)
Oscar Zambrano (22), sem var á láni hjá Hull City árið 2024, gæti snúið aftur til félagsins frá slóvenska félaginu Maribor. Þegar hann var síðast hjá Hull var lánssamningi hans rift eftir að hann féll á lyfjaprófi í landsliðsverkefni með Ekvador. (Hull Daily Mail)
Nottingham Forest hefur sett sig í samband við Fiorentina vegna brasilíska hægri bakvarðarins Dodo (27). (Firenze Viola)
Fulham hefur samþykkt að kaupa Erskine Rennie (16) frá Celtic fyrir 100 þúsund pund. (Sky Sports)