03.06.08 - 11:40
Eyþór Ernir Oddsson
Lee Carsley til Birmingham (Staðfest)

Lee Carsley í leik með Everton.

Mynd: Getty Images

Lee Carsley í leik með Everton.

Mynd: Getty Images
Enska félagið Birmingham City, sem féll úr ensku úrvalsdeildinni í vetur, hefur tekist að næla sér í miðjumanninn Lee Carsley, sem leikur með Everton.
Carsley, sem er 34 ára gamall gerir þriggja ára samning við Birmingham en hann hefur staðist læknisskoðun.
,,Samningur minn við Everton rann út og mér var boðið nýjan en mér fannst þetta vera rétti tíminn til að fara," sagði hinn írski Carsley.
,,Ég vildi nýja áskorun og þurfti ekki að nauðsynlega að fara til annars úrvalsdeildarfélags og eiga í basli þar."

Heimild: Sporting Life