03.06.08 - 16:45
Davíð Örn Atlason
Jens Lehmann í Stuttgart (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Jens Lehmann, markvörðurinn litríki er genginn í raðir Suttgart á frjálsri sölu frá Arsenal.
Lehmann skrifaði undar eins árs samning með þann möguleika að geta framlengt um eitt ár til viðbótar þegar að sá samningur rennur út.
Stuttgart hafa verið að leita að nýjum markmanni eftir slaka frammistöðu Raphael Schafer á nýafstöðnu tímabili.
,,Við erum mjög ánægðir með að fá Jens Lehmann í okkar raðir," sagði Horst Heldt, yfirmaður íþróttamála hjá Stuttgart.
,,Hann er magnaður markvörður og hann býr yfir gífulegri reynslu. Hann er nákvæmlega týpan sem við vorum að leita að og ég er fullviss um að hann muni stimpla sig vel inn í liðið," bætti Heldt við.

Heimild: Sky