Selfoss vann 2-0 sigur á Þór á útivelli í Lengjudeildinni í kvöld. Dean Martin þjálfari Selfoss var að vonum ánægður með sigurinn í leikslok.
„Alltaf geggjað að vinna fótboltaleik, skiptir ekki máli hvaða liði þú ert að spila á móti, alltaf gaman að vinna. Þetta var ekki okkar besti leikur, þetta snýst um að vinna. Við vorum baráttuglaðir, unnum seinni boltann og skorum gæðamörk,"
Selfoss er með 13 stig á toppi Lengjudeildarinnar eftir fimm umferðir. Deano er gríðarlega sáttur með byrjunina á tímabilinu.
„Það er frábært að byrja vel, fáum allt með okkur og mikil gleði, menn mæta á æfingar og allt miklu skemmtilegra. Þetta er mikil vinna, ekki létt og við höfum unnið fyrir þessu," sagði Deano.
Athugasemdir